26.11.05
Mig langar svo að vita hvort einhver kíki hér inn rúmu ári eftir síðasta póst. Þannig að ég bara spyr....................
12.10.04
Ekki að standa mig :-/
Nei aldeilis ekki!! Ég er nú búin að liggja nokkra stund yfir þessu html eða htlm eða hvað það nú heitir og botna ekkert í því að ég skuli ekki fá linkana mína fram á síðuna. Mér tókst þetta hérna fyrir mörgum mánuðum síðan en núna virðist ég ekki hafa tötsið fyrir þessu....... agalegt hvernig aldurinn fer með mann ;o)
Annars er allt fínt að frétta af þessum bæ. Sumarið var frábært, fékk lítinn strák í afmælisgjöf frá henni Unu Þóru minni sem er reyndar ekkert svo lítill lengur og svo fór ég með fjölskyldunni minni til Mallorca og lifði eins og prinsessa í tvær vikur. Vinnan er svo búin að eiga hug minn allan undanfarnar vikur þar sem ég skemmti mér jafnan konunglega með mínu ástkæra samstarfsfólki.
Ég vildi nú bara rétt kasta kveðju á ykkur fyrst ég fékk mig til að kíkja hingað en annars þarf ég að fara að setja mig í stellingar fyrir félaga mína í MI5, ég ætla víst seint að vaxa upp úr þessari sjónvarpssýki.
Adios amigos

29.8.04
8.6.04
Sko, ein aðalástæðan fyrir því að ég er svona löt að blogga er útaf því að ég á svo ljóta bloggsíðu. Ég hef reynt að breyta henni en það verður alltaf einhvernveginn öðruvísi en ég ætla.
28.3.04
Yndislegt að eiga eina svona leti helgi, ég hélt ég væri búin að gleyma því hvernig maður á að slaka á og ja... vera bara löt. Nehei sko ég kann þetta bara alveg ennþá mmmm...... ég um mig frá mér til mín á vel við í dag! Sinni ykkur elskunum mínum svo bara á morgun og alla hina dagana þetta er orðið gott.
9.3.04
Er uppi í vinnu núna að bíða eftir örverunum (fólkinu sem vinnur með mér á örverustofunni) þar sem við erum að fara að æfa atriðið okkar fyrir árshátíðina, er að spá í að leggja inn uppsagnafrestinn minn í vinnunni þar sem það munu eflaust streyma inn tilboð frá hinum og þessum leikhúsum í heiminum eftir frábæra frammistöðu. Þetta verður mögnuð árshátíð!
Einkalífið gengur sinn vanagang, hitti Unu Þóru og Hörpu um helgina auk þess að fá pabba til mín á sunnudag. Get svo alveg hugsað mér að fara í saumó bráðum en ég efast um að það verði fyrir árshátíð þar sem hún á hug minn allan! Reyni að halda í næstu uge!!

5.2.04
Loksins kominn febrúar. Ég get svo svarið það að janúar er eins og hálft árið, svakalega lengi að líða, kannski vegna þess að það hefur ekki verið neitt brjálað að gera í vinnunni og því hefur maður látið 8 tímana duga. Núna er reyndar eitthvað að lifna yfir í Sýni og því eru dagarnir fljótir að líða eða allavegana það sem komið er af mánuðnum.
Mamma og pabbi komu um helgina og ég hitti því helling af vinum og ættingjum þar sem ég skunda með þeim í heimsóknir og þau fá heimsóknir til mín. Pabbi þurfti að vera aðeins lengur í bænum og fór á þriðjudaginn en mamma á mánudaginn svo koma þau aftur síðustu helgina í febrúar og er mig farið að hlakka svakalega til. Stefni reyndar á að fara heim helgina áður en þau koma.
Síðustu þrír dagar hafa ekki verið mjög eðlilegir hjá mér þar sem ég hef þurft að horfa á veröldina frá hlið. Jú, jú, á þriðjudaginn vaknaði ég föst í hálsinum og hef þurft að líða stríðni og niðurlægingu í vinnunni sem ég mun ekki bera bætur fyrir. Svo skemmtilega vill til að ég er í skemmtinefndinni og árshátíð í vændum.........................væri ekki bara tilvalið að skemmta sér á kostnað annarra þar he,he,he....já passið ykkur bara kæru vinnufélagar!! (nei, ég er ekki svona vond, allavegana ekki neitt rosalega).
Annars verð ég að vinna um helgina en langar obbosslega mikið að gera eitthvað annað skemmtilegt líka!!

21.1.04
Sæl öllsömul sem gefist ekki upp á blogginu mínu. Við skötuhjú erum alsæl í nýju íbúðinni og höfum þegar fengið næturgesti. Gugga systir kom til að fara í skólann sinn í nokkra daga og prófaði bæði gestaherbergin, ekki það að það fari mikið fyrir þér elsku systir :oD! Mamma og pabbi komu svo eina helgi og þeim leist bara vel á.
Annars hefur svo sem ekkert rosalega mikið nýtt verið að gerast undanfarna daga. Una Þóra hefur haldið í mér lífinu með því að vera svona dugleg að kíkja til mín og með mér út og svo er hún svo ótrúlega sæt stelpan, komin með svo myndarlega kúlu á mallan sinn. Litla krílið hennar stefnir á að koma í heiminn þann 2.júní og við pabbi tökum nú ekki annað í mál en að fá það í afmælisgjöf þann 14. Svo lengi sem hún verði ekki orðin þreytt, þá gefum við kannski séns.
Ég ætla að skella mér til Eyja á föstudaginn og vera fram á sunnudag, mmmmm, ég hlakka til!

30.12.03
Gleðileg jól öll sömul. Ég er búin að hafa það ansi gott hérna í faðmi foreldra minna og fjölskyldu, fékk fallegar jólagjafir og hlýjar kveðjur ásamt himnesku fæði. Vonandi hafið þið það öll gott og njótið þess að vera með vinum og fjölskyldu.
Ég er búin að vera hér í Eyjum síðan þann 19. desember og ætla að fara til rvk 2. janúar. Við Kalli vorum að fá okkur íbúð í Laufenginu, sama gata og Fjóla vinkona, Inga Birna frænka, Sara vinkona og Unnþór og Kristín búa í......sem sagt nóg af fólki til að droppa inn hjá. Una Þóra er heldur ekki langt í burtu frá mér sem er náttúrulega ómetanlegt, vona bara að þau fari ekki að flýja eitthvað annað. Íbúðin er eins og sniðin að okkar þörfum, ég er hrikalega ánægð með hana og hlakka til að fara að koma mér betur fyrir. Vonandi fer ég þá líka að fá fleiri heimsóknir, þeim hefur samt fjölgað til muna þessa nokkra daga sem ég var í henni fyrir jól.
Ég skal alltaf vera með heitt á könnunni!!
Ef þetta skeyti verður líka allt útí spurningamerkjum, viljið þið þá tölvugúrúar segja mér hvað ég þarf að gera til að laga það!

28.11.03
Nú verða eflaust margir hrikalega hissa þegar þeir sjá þessar línur. Var svona til gamans að kíkja á netið sem ég hef ekki gert lengi vel og sá þá að nær allar mínar vinkonur eru að blogga og þær eru sko að blogga, ég hafði ekki einu sinni tíma í að lesa bloggin þeirra.
Það hefur eins og flestum grunar ýmislegt drifið á daga mína frá síðasta bloggi, smá update.......... vinna, London, trúlofun og jú........ líklegast flutningar á næsta leiti. Man ekki hvort ég var búin að tilkynna það (nenni engan vegin að vera að lesa mitt eigið blogg) en Hawai rósin er farin yfir móðuna miklu, eiginlega mér til mikillar gleði. Nú búa hjá okkur tveir lukku bambusar, einn sem pabbi og mamma gáfu Kalla í fyrra og einn sem ég fékk frá Guðrúnu vinkonu í útskriftargjöf þannig að við getum bæði verið hamingjusöm.
Hef frétt að einhverjir gefist ekki upp á mér og kíki reglulega hérna inn þannig að..........

24.6.03
Loksins er maður orðin viðurkenndur matvælafræðingur! Ég kom í sjónvarpinu og allt maður þannig að það ætti ekki að fara fram hjá fólki sem horfði á það um helgina. Það var löööööööng upptalning á nöfnum í útskriftinni en mjög hátíðleg. Svo fórum við í brúðkaup og svo út að borða og í bústað með mömmu, pabba og systrunum + fylgifiskum þeirra.
Mér líður svo vel að vera búin en ég veit að það verður tómlegt í haust þegar maður er vanur að vera að byrja í skólanum.......svo um jólin mmmmmmmm.........þá ætla ég að njóta jólaundirbúnings og laus við allt prófstress, vá hvað það verður gaman.
Vildi bara kasta á ykkur kveðju og takk, takk, takk fyrir mig þið sem senduð mér kveðjur í ýmsum formum (líka þið sem senduð mér fallegar hugsanir og eruð að fatta núna, ó já hún var að útskrifast, maður getur verið gleyminn, ég veit).......mikið þykir mér vænt um ykkur að hugsa til mín!!!

17.6.03
Well, well !! Já ég veit að sumir mega sko skammast sín fyrir það að vera latir við að blogga. Það er ótrúlegt hvað maður þarf stundum frí frá tölvunni eins og öllu öðru. Eftir blessaðan skólan hef ég ekki mikinn tíma í að glugga í tölvuna hvorki í vinnunni né heima.
Annars átti ég afmæli á laugardaginn, orðin 23ja ára skvísa.........til hamingju ég!! Ég fór til eyja og hélt upp á það með pabba því hann varð 53 kallinn og Stebbi frændi (tvíburabróðir hans pabba) að sjálfsögðu líka. Dagmar dóttir hans var að gifta sig og við lentum í heljarinnar veislu, Hreimur í LogS og Hálft í hvoru mætti á svæðið auk mjög skemmtilegra heimatilbúinna skemmtiatriða. Þvílík stemmning, svo er það bara goslokaafmælið næst og svo jú..................Þjóðhátíð............vííííííííí!
Það er æði í vinnunni en bilað að gera þannig að góða veðrið hefur ekki verið að sýna sig fyrir mig því ég er fram á kvöld að vinna.
Reyndar........fór í útilegu um þar síðustu helgi í Húsafell eða réttara sagt Reyðarfellsskóg það var gaman fyrir utan smá klúður í tjöldunarstörfunum (fengum tjaldvagninn hjá tengdó lánaðan), það var sko ekkert sem ekki þurfti að gera tvisvar við það að reisa tjaldvagninn, við "hjónin" ætlum ekki að leggja þetta fyrir okkur í framtíðinni, allavegana ekki í nánustu!!!
Vonandi hefur einhver haft þolinmæði og kíkt á síðuna öðru hvoru.........reyni að bæta mig!!

15.5.03
Annars búin í prófum og farin að vinna, ógeðslega ánægður ungur matvælafræðikandídat þessa dagana.
Gekk bara fínt en á eftir að fá einkunnir.......

Ef ég myndi fara á stefnumót með frægum leikara þá yrði þetta víst sá! Haldið að þetta yrði flott, Angelina Jolie og Goggi klúri (Georg Clooney)!!
10.5.03
Get nú ekki sagt að ég sé með ragettu í rassinum í dag!
Er að reyna að einbeita mér að þessari sjúkdómafræði en mig langar svo út í góða veðrið:o(
Ekki nóg með það þá var verið að bjóða okkur í heimsókn til Grindavíkur í kvöld, grill og læti + gisting, og ég þarf að vera heima. Ég er samt að pæla í að gefa bóndanum leyfi til að fara en vá hvað ég á eftir að vera eirðarlaus að hanga heima, allir að djamma!
Ég fór að kjósa í gær og ég ætla ekki að opinbera þá kosningu en ég vona að þetta verði spennandi úrslit, það er svo gaman þegar það er mjótt á munum (finns mér allavegana, örugglega ekki harðnöglunum í pólitíkinni).
Læt örugglega heyra í mér aftur í dag!

9.5.03
Júhúhú........!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ég er að fara að útskrifast, var í síðasta nauðsynlega prófinu í morgun (næsta próf skiptir ekki máli) til að útskrifast og hef það sterklega á tilfinningunni að ég hafi náð, það sama má segja um hin tvö prófin. I can´t beleve it ég er að verða matvælafræðingur, loksins, loksins, hélt sá dagur kæmi aldrei en hann virðist vera á næsta leiti.
Það er kominn annar bloggari í hópinn, hún Ingibjörg vinkona og ég ætla að stelast til að setja link hjá mér, Ingibjörg þú segir mér bara að taka hann ef þú vilt ekki að ég sé með hann.
Vala systir er að koma með Herjólfi og ég ætla að sækja hana og hún ætlar að lúlla hjá mér :o) Svo er hún að fara til Parísar í nótt, nýkomin frá Karabíska hafinu............það er munur að vera ekki í skóla, ha!! (út af því að ég væri neflilega alltaf í útlöndum ef ég væri ekki í skóla...!!!).
Ætla að sleppa öllum lærdómi í dag svo ég verði endurnærð á morgun og hinn.........Sjúkdómafræði here I come!

7.5.03
Jæja, hálfnuð í prófunum..........bara tvö eftir og þá er ég búin. Næsta próf er reyndar frekar erfitt því ég er ekkert búin að vera að læra í því í vetur en þau tvö sem eru búin voru ágæt, ég næ allavegana og það verður bara að duga, þó svo ég sé nærri alltaf undir meðallagi!! Einhverjir verða víst að vera þar, annars væri ekkert meðaltal, bara allir með sömu einkunnina.
Ég á samt þvílíkt erfitt með að einbeita mér núna því mig langar svo að leggja mig. Ég svaf svo illa í nótt, var að dreyma að ég hefði gleymt að læra undir prófið og svo þegar ég gafst upp á að sofa kl 8 í morgun þá lærði ég og lærði en fór svo í litun og klippingu. Myndin af mér er hérna fyrir neðan ................. nei djók! Ég er samt orðin alveg dökkhærð og er bara mjög ánægð með það, langar helst að fara að kaupa mér ný föt við hana nýju mig!
Læt heyra í mér!

30.4.03
29.4.03
Ég virðist vera........

You're Angelina Jolie...you may jump from thing to
thing...but you know who you are and no one
helped you to get there. You a crazy mamma
jamma...
What actress are you?
brought to you by Quizilla
hmmmm............ ekki beint það sem mig grunaði
28.4.03
Long time no seen!!
Bara búið að vera að læra í Eyjum undanfarna daga en komum í bæinn í dag með Herjólfi. Ég var ekkert smá heppin að fara til eyja því mamma átti svo góðan mat handa mér og svo var hún Elín frænka hans Kalla að fermast í gær og þvílíkar og aðrar eins kræsingar á boðstólum, það er eins gott að mæta í leikfimina í prófunum svo það vaxi ekki á mann tröllarass. Ég held að ég geti sagt samviskusamlega að ég hafi verið nokkuð dugleg að læra um helgina, segjum bara að fjölskyldan hafi veitt mér svo mikinn innblástur. Mér fannst samt alveg hrikalega leiðinlegt að fara í burtu, Svana Björk og Arna Dögg voru eins og englar og það er svo gaman að sjá hvað þeim þykir vænt um mann enda þykir nú stóru frænku alveg óendanlega vænt um litlu stelpurnar sínar.
Prófin hefjast svo á laugardaginn og verða mjög þétt eða fjögur próf á tíu dögum og það er jú þétt þegar sumir..........(ha hverjir??) hafa ekki alveg verið að gefa sig í þetta þessa önnina og verið að vinna alveg helling. Vöruþróun er fyrsta prófið og grunar mig um að andstyggilegar spurningar komi þar í ljós, allavegana fyrir mig. Það er samt ekki spurning ég ætla nú að leggja allt í þetta og drekkja mér í upplýsingum og henda þeim svo út fyrir prófið á eftir og endurhlaða. Ég er búin að átta mig á því að kannski þarf ég ekki að vita allt saman eftir útskrift því það mikilvægasta er að eiga allar upplýsingar og glósur og kunna að finna það sem maður er að leita af þurfi maður á því að halda. Maður getur víst ekki kunnað allt og það þýðir ekkert að leggjast í þunglyndi yfir því.
Vonum að ég verði eins bjartsýn þegar líða fer á vikuna :o)

13.4.03
Sorry hvað ég læt ekkert heyra í mér en ég er loksins búin með ritgerð og fyrirlestur og það gekk fínt. Var í fríi í dag í vinnu og hef mest allan daginn verið að sóa honum í vitleysu. Það má alveg því hér með hefst lærdómur af fullum krafti. Og leikfimin líka en hún hefur sko setið á hakanum á meðan á þessum ósköpum hefur staðið, Guðbjörgu tókst að rífa mig af stað í morgun og ég er að farast úr harðsperrum eftir body pumpið. Vonandi tekst mér að fara aftur á morgun.......kemur í ljós!
Ég var víst búin að lofa að segja frá gangi mála með Hawai rósina okkar. Hún er við hestaheilsu eins og er eftir að hafa jafnað sig eftir brottför foreldranna til eyja um þar síðustu helgi. Ekki það að hún hafi verið svo slæm þegar við komum heldur var það þannig að ég vökvaði hana þegar við komum heim og svo nokkrum tímum seinna kem ég að kalla vera að vökva hana. Kalli er ekkert sérstaklega spar á vökvunarvatnið hjá afkvæminu og allt flæddi út um allt úr blómapottinum. Þessi sundferð tók svolítið á heimasætuna og því þurfti hún mjög mikla aðhlynningu í kjölfarið en þetta er allt að koma og hún er orðin hress.

9.4.03
Jóhanna Ýr er búin að eignast alveg svakalega fallegan dreng sem þið getið kíkt á hér.
Til hamingju elskan mín ég er búin að finna svo mikið til með þér í gegnum þessar ógöngur undanfarið og ég ætla sko rétt að vona að þó svo Gísli Hrafn sé mættur að þú náir að hvíla þig almennilega. Rosalega ertu orðin rík!!
Annars er ekkert að frétt af mér í augnablikinu er búin að vera að berjast við að halda mér vakandi yfir ritgerðinni og það gengur ekki nógu vel.

7.4.03
6.4.03
Helgin hræðilega næstum búin! Nei segi nú bara svona, var neflilega að vinna frekar mikið og lærdómurinn þ.a.l. algerlega í molum. Við héldum fyrirlestur á fimmtudaginn eins og ég var held ég búin að segja og hann gekk alveg þvílíkt vel og kennararni og Myllan bara rosa happy með niðurstöðurnar......við getum þetta þá þrátt fyrir allt!
Ég var nú að vinna örlítið lengur en ég bjóst við í dag eða til fimm, annars er þetta svo fljótt að líða þarna í Sýni að það skiptir ekki máli. Þegar ég kom heim úr vinnu voru Erna mágkona og Grétar kærastinn hennar í heimsókn og við skelltum okkur öll út að borða á Ítalíu. Mikið svakalega var rómó stemning þar, ítali að spila á gítar og syngja..........Vá þetta var frábært. Held ég kaupi mér næst einhvern svona ítaliana disk næst þegar gefst tækifæri. Ég elska neflilega svona góða bakgrunnstónlist, sérstaklega ef ég er með gesti.
Svana Björk var að gera mér tilboð sem ég bara hreinlega get ekki neitað, bökunarpappír (svo dugleg að baka), álpappír og allskonar pokar á 1500kall. Verð að játa það að í þeim tilfellum sem þessa hluti vantar á heimilið þá gleymum við alltaf að kaupa þá þannig að maður verður settur fyrir sumarið í grillið og svona, þarf ekki að pæla í því.

3.4.03
Púff, var að leggja lokahönd á minn part í blessuðum fyrirlestrinum á morgun..........its almost over!
Það er annars alveg merkilegt hvað ég get ekki sagt nei! Þurfti endilega að vera að taka að mér að kynna stoðmjólkina fyrir MS (sem einhverskonar manneskja með "faglegan" bakgrunn). Mér finnst æði að taka þátt í þessu en það virðist vera e-ð erfitt að púsla dögunum saman hjá mér. Fimmtudagurinn 3/4 9.00 Þarf að mæta í á fund í Sýni, 11.00 í skólann, 12.15 hádegishlé (fer í að undirbúa fyrirlesturinn kl.13.00 sharp), 13.00 fyrirlestrarhald um möndlukökur á Rf og það sem því tilheyrir, 16.00 kynna í Bónus. Föstudagur 4/4 skóli og vinna í Sýni. Laugardagur kynna stoðmjólk. Sunnudagur vinna í Sýni. Svo þykist ég ætla að halda annan fyrirlestur á fimmtudaginn í næstu viku og skila ritgerð samhliða honum.......ps. ekki byrjuð á því geimi!
Sorry kvartið í mér en svo held ég að það séu einhver próf að koma líka :o(
Það er gott að vera ung og hraust til að geta afgreitt svona hluti svo ég þykist vera smá Pollyana í mér.
Það er nú meira hvað ég er mikill íþróttagarpur!
Var bíllaus í dag þannig að eftir skóla ákvað ég að fara til Guðrúnar vinkonu og ná í hjólið hans Kalla sem er búið að gista í geymslunni hennar Guðrúnar síðan í Maí. Vildi ólm nota tækifærið og hjóla í heim og njóta náttúrufegurðarinnar sem Reykjavík, og þá meina ég Ægissíðuna og Öskjuhlíðina, hefur uppá að bjóða. Legg af stað frá Guðrúnu kl. 17.45 og hjóla út á Reykjavíkurflugvöll og þaðan út á Ægissíðuna (held alveg örugglega að þetta sé Ægissíðan líka þarna við sjóinn). Er ég er búin að vera að hjóla í ca. 10 mín er mig farið að verkja allsvakalega í lærin og komin með blóðbragð í munnin btw. var bara rétt hjá flugvellinum þannig að ekki var þetta löng vegalengd. Ég hugsa með mér að ég sé nú meiri auminginn að vera að gefast upp svona í byrjun, búin að vera að púla í steppi og spinning, þannig að ég þrauka í 3 mínútur í viðbót. Vá ég varð að stoppa til að hvíla mig. Þegar ég svo sest aftur á hjólið tek ég eftir því að ég er næstum því á felgunum. Datt sko ekki í hug að pumpa kannski örlitlu lofti í kaggann og næsta bensínstöð í órafjarlægð. Mín þurfti sem sagt að reiða hjólið alla leiðina upp í Kópavog, nánar tiltekið Litlahjallann, rennandi blaut og ógeðslega pirruð. Eftir einn og hálfan tíma (19.15) kom ég heim með gígantískar blöðrur á fótunum og ég get svarið það að ég er enn með blóðbragð í munninum eftir átökin.
Bara að þið vissuð hvað er erfitt að hjóla á hjóli með litlu lofti í dekkjunum. Vil bara minna ykkur á að athuga hjólabúnaðin fyrir vorið og ef hann er slæmur prufið að hjóla í 10 mínútur og endilega sendið mér línu svo ég geti vottað ykkur samúð mína.

1.4.03
Komin til Kópavogs city!
Helgin var alveg rosalega fín eins og ég bjóst nú við. Mamma átti fullt að borða handa okkur og ég var þó nokkuð dugleg í heimsóknum og lærdómi. Arna Dögg byrjaði að segja Svandís eða "saddís" alveg upp úr þurru. Er vön að vera að hamra þetta ofaní hana greyið en sleppti því núna og sú plataði mig. Ég er alveg viss um að hún hefur verið að stríða mér, hefur getað sagt nafnið mitt allan tíman :o/ Ég fór til ættingja og tengdafólks og hitti hann Pétur afa á hverjum degi því hann var svo duglegur að koma til mömmu á meðan við vorum þar.
Get ekki sagt að ég sé í skýjunum yfir því að vera komin í bæinn en það er nú alltaf gott að hafa dótið sitt, hefði samt getað verið mikið lengur heima hjá mömmu. Það er nú meira hvað ég er mikil mömmustelpa...................
Ég lenti í svaka afmæli í vinnunni því Sýni er 10 ára í dag. Fengum kínverskan í hádeginu og e-a ostatertu í kaffinu svo var ég að telja að ég á eftir að vinna 9 sinnum áður en ég byrja í fullu starfi, farin að hlakka frekar mikið til.

27.3.03
Ok. ég veit á að vera að pakka niður.........er byrjuð en svo kíkti ég aftur á netið og fann svolítið sem þið verðið að sjá!
Manni vöknar bara um auga verðið að hafa hjlóð á, snilld! Bush og Blair tjá ást sína á hvorum öðrum

Södd, södd, södd. Búin að vera í átpartýi hjá henni Hrund með "gömlu" matvælafræðinni, pöntuðum frá Indó-Kína og svo gerði Védís þessa dýrindis köku í eftirrétt. Hún er ekki orðin neitt smá sæt stelpan, á að eiga í júlí. Það var æði að hitta fólkið ég hitti þau neflilega svo sjaldan. Það er ein manneskja í alveg sérstöku uppáhaldi og það er hún Mæja, oh my god, hún þarf nú bara rétt að opna á sér munnin og þá liggur maður í hláturskasti ekkert smá sniðug stelpa. Annars eru þau alveg yndisleg að leyfa mér "litla fyrsta árs nemanum" að fljóta með í þessum samfundum þeirra, á kannski henni Birnu Vigdísi það helst að þakka hún er svo dugleg að hugsa um mig.
Vitiði hvað??? Vöruþróunarverkefnið er bara alveg að verða búið, ég ætla að koma að kyssa ykkur öll sem nennið að lesa bloggið mitt þegar við skilum þessari pínu í rassinn. Kannski maður bara skelli sér til hennar Jóhönnu Ýr, henni myndi bregða svo mikið að sjá mig allt í einu að ég er alveg viss um að hann Krummi myndi kíkja út úr mallanum hennar til að sjá hvað væri eiginlega á seiði kannski verður hann bara kominn, hver veit??
Verð núna samt að fara að pakka niður því það er Herjólfur í fyrramálið en fyrst fundur í Mjólkursamsölunni klukkan átta.....díses hvað ég verð hress!
Til hamingju með afmælið elsku systir mín og svo líka Ólöf, jú og Eyrún systir hennar Hrefnu......þétt setinn dagur!

24.3.03
Bara að þessi verklega kennsla væri búin. Á einhver nokkra tíma í sólahringnum sínum sem getur lánað mér þá fram yfir próf?
Ekki nóg með það að þessi matvælaörverufræði mun örugglega ekki klárast fyrr en ég verð komin á grafarbakkann þá erum við skólasystur að gera vöruþróunarverkefni sem mig langar að æla á. Erum búnar að vera í 7 vikur í þessu verkefni og b.t.w. nær eingöngu í þessu verkefni, hef verið að smakka möndlukökur í hverri viku og mæla einhverja hundleiðinlega þætti í þessum kökum............búin að fá upp í kok. Það eina sem huggar mig þessa dagana er að ég verð laus allra mála eftir 49 daga, þ.e. ef ég næ að klára skýrslur, ritgerðir og verkefni og ná prófunum...og vinna. Ef ég get þetta þá skil ég ekki af hverju ég er ekki ofurkonan!!
Annars á maður ekki að vera að væla því maður uppsker það sem maður sáir og þetta er víst alveg þess virði.
Er annars að fara til Eyja á fimmtudaginn, með allt mitt skóladót og Kalla í farteskinu. Hlakkar svo til að sjá elsku bestu mömmu og elsku besta pabba og jú systur og systradætur líka. Var einmitt að tala við Sigríði hennar Völu systir í gær og hún var sko með ælupest.......hún er að bíða eftir mér svo ég geti strokið á henni magann á fimmtudaginn......vonum að þetta sé nú ekki svo skæð ælupest :o)
Má annars skammast mín fyrir að vera ægilega vond vinkona upp á síðkastið, hef ekki haft samband við neina einustu hræðu og er að kafna úr móral. Ég er ekki búin að gleyma ykkur elskurnar mínar en læt sjá mig þegar hlutirnir fara að róast!

23.3.03
Var að koma úr vinnu, búin að vera að vinna báða dagana um helgina (og á föstudaginn til 7) þannig að mitt stutta helgarfrí er nú hafið. Hafði reyndar kosið að eyða því í lærdóm en núna þegar ég gekk inn í íbúðina tók ég eftir því að það þarf að fara að þrífa hér, hvort ætti ég nú að gera??
Annars horfði ég á Gísla Martein í gær og var bara alveg hæst ánægð með þetta lag sem fer út. Vona bara að það náist ágætis árangur, samt týpískt að það verði eitthvað klikk með fyrsta lagið. Vonum það besta en ég er að passa mig á því að vera ekki of bjartsýn, er það nefnilega alltaf í Evróvision. Annars hef ég ekki talið mig til bjartsýnismanneskju en þetta er undantekning.
Nenni annars ekki að röfla neitt núna er syfjuð og verð að fara að gera eitthvað að viti svo að ég sofni ekki.

20.3.03
Vá ég hef greinilega náð að svindla mér í gegnum kerfið með skrifum mínum hér að neðan, vonandi að enginn hafi tekið neitt nærri sér enda alls ekki illa meint.
OHHH, týpískt ég!!! Þarf bara alltaf að vera afsaka mig.....er hætt við allar afsakanir, mér bara finnst þetta og punktur. Hún Ingibjörg vinkona er mér samt svo kær að það er helst að hafa móral yfir að særa hana greyið en hún sendi komment á spjallið og mér sýndist hún bera sig vel þessi elska. Þú kannt þetta stelpa!!
Var annars að koma úr saumó með Guddu, Tótu, Stínu og Unu og er afvelta eftir þá heimsókn. Þórunn gerði súpergóðan heitan rétt og eplakökuhring með ís mmmmmmm........ Það voru engar kjaftasögur sem er bara ágætt því maður á ekki að vera að slúðra um fólk (er að reyna að telja mér trú um að ég geri það ekki). Og viti menn svo er annar saumó á morgun með djöflunum mínum í Succubus og efast ég ekki um að maður fái allavegana eina í æð!! Það væri nú saga til næsta bæjar að við stöllur hefðum ekkert að tala um heila kvöldstund..hehe!
Ætla nú að kíkja á sjónvarpið og athuga hvað er að ske í heiminum. Sofiði rótt í alla nótt :o)

19.3.03
Hvað er eiginlega að þessu sko þetta kom fyrir aftur, var að tjá mig um sama hlutinn, fer að vera dularfullt!
But me, the bright girl, copyaði bloggið og er búin að seifa það í word!
Ætla að reyna aftur

Skrópaði í skólann í morgun til að geta lært fyrir fund sem ég er að fara á í dag. Málið er að ég held að ég yrði drepin á staðnum af skólasystrum mínum (sumum....) ef þetta væri ekki rétt hjá mér þannig að ég tek enga sénsa. Líður samt eins og einhverri algjörri svefnpurrku að vera að skrópa í tíma sem ég á að mæta í kl. 11.
Sko það sem ég var að skrifa um daginn og komst ekki á netið var eitt dæmi um það að það er gríðarlegt samsæri í gang, er viss um að yfirvöld hér á landi ritskoða allt sem er sett á netið hvar sem er í heiminum og koma af stað einhverri tæknilegri villu sem hindrar það að óæskileg orð séu látin falla. Ég mun því tala dulmál sem fólk getur reynt að lesa úr.
Þetta er náttúrulega old news þetta með karnivalið í Lundúnum þar sem Æðstistrumpur og vinur áttu þarna samtal en ég bara átti ekki til orð yfir því hve allir strumpar landsins gátu ekki haft "sjálfstæða" skoðun í þessu máli. Enginn strumpur sem ég heyrði tala gat verið hreinskilinn og sagt bara "ég veit ekki". Það er ekki eins og ég sé bundin neinum klúbb hér en satt best að segja lækkaði strumpaklúbburinn frekar í áliti hjá mér við þetta. Ef maður ætlar að velja klúbb sem maður treystir þarf sá klúbbur að standa undir nafni og mér fannst þetta ekki strumpalegt sem strumpamenn hafa verið að segja. Það skal enginn reyna að sannfæra mig um að hann viti hvað fór þarna fram, það hefur sko enginn hugmynd um það nema þeir sem þarna voru og að mér skilst þá er þeirra minni nokkuð gloppótt líka. Plís elsku bestu strumparnir mínir þið eruð svo sætir ekki vera að skemma ykkur með því að segja já og amen við öllu sem æðstistrumpur segir, þið megið vera "sjálfstæðir" það er allt í lagi. Er samt ekki að segja að Æðstistrumpur sé neitt að plata ykkur eða neitt þannig, bara ekki vera svona hrikalega ákveðnir í að taka afstöðu með honum. Enginn að segja að ef þið segist ekki hafa skoðun á málunum séu þið ekki strumpar.
Annars er ég ekki búin að ákveða hvað ég mun kjósa en belive me ég mun ekki bara horfa á þá sem eru í æðstu stöðunum í klúbbunum heldur líka á kjósendahópinn, mér finnst það segja alveg helling ef ég tala við einhvern sem veit hvað hann eða hún ætlar að kjósa hvernig sú manneskja talar um klúbbinn sinn. Ég þoli ekki þegar fólk getur ekki viðurkennt að það gæti mögulega haft rangt fyrir sér í einhverjum efnum. Ég bara get ekki trúað því að það sé hægt að velja sér klúbb sem maður er algjörlega sammála í einu og öllu. Það eru mjög mörg ágreiningsefni í landinu og hafa flestir klúbbarnir tekið afstöðu til þeirra, ætlar einhver að segja mér samviskusamlega, ég endurtek, SAMVISKUSAMLEGA að þetta séu sko bara akkúrat alveg sömu skoðanir og þeir hafa. Ég er bara farin að hallast að því að það séu klúbbarnir sem séu farnir að móta skoðanir fólks frekar en að við, fólkið í landinu séum að ráða einhverju.

17.3.03
djö............. var búin að skrifa þvílíkt krassandi póst (OG LANGAN) svo datt hann bara út og ég er pirruð og nenni ekki að skrifa þetta raus í mér aftur, var e-ð að tjá mig um pólitíkina og greinilega mega mínar skoðanir ekki koma fram á blaði. Augljós skilaboð!
13.3.03
Hello efríbodí! Bara búina að vera kærulaus að setja inn á síðuna. Það er búið að vera alveg svaka mikið að gera hjá mér og mér finnst ég eiginlega vera að svíkjast um með að vera á netinu núna þegar ég þarf að vera að læra. Það er alveg óþolandi þegar er svona mikið að gera í skólanum þá fæ ég alveg hrikalegan móral þegar ég er ekki að læra. Jafnvel þegar ég sit í kennslustundum þá er ég alveg að hugsa........"gæti verið búin að klára skýrsluna núna" eða "gæti verið að vinna í ritgerðinni núna"........ohhh hvað ég hlakka til þegar þetta er búið.
Helgin var til að mynda frekar annasöm. Var að vinna lengi á föstudaginn og og laugardagsmorgun og svo fengum við Önnu og Ingó í mat og lentum úti á lífinu. Hittum Unu Þóru þar og það var bara mjög gaman, sátum á Hverfisbarnum. Á sunnudaginn fór ég að kynna matvælafræðiskorina á kynningardegi Háskólans og var svona pínu þreytt þar en hresstist nú aldeilis við það að fá Hörpu, Magga og Tómas Bent í heimsókn. Horfði svo á A Beutiful mind um kvöldið og þvílíkt góð mynd sem hún er, maður má skammast sín fyrir að vera ekki búin að sjá hana.
Eftir helgi hef ég verið smám saman að vinna upp svefnleysi helgarinnar og verð vonandi búin að ná því fyrir árshátíðina hjá sýni á laugardaginn.
Læt heyra í mér fljótlega, læra, læra, læra og horfa svo á sjónvarpið í kvöld!
Hverja velur eiginlega Aron í kvöld...........Helen????????

7.3.03
6.3.03
Var að koma frá Tómasi Bent rúsínubollu. Pabbi hans átti afmæli í gær (til hamingju Maggi) og Harpa átti svo mikinn afgang af afmæliskaffi að ég varð að fara og hreinsa ísskápinn hjá henni. Svo komu Una og Guðbjörg líka að hjálpa okkur þannig að Maggi fær engan afgang þegar hann kemur heim. Það er svo langt síðan ég hitti þetta rassgat (kannski ekki fallegasta nafnið um svona sætan, lítin strák) að hann er bara kominn með tönnslu. Ég er alveg viss um að hann verði bara farinn að labba eða tala eða eitthvað næst þegar ég heimsæki hann. Hann er eitthvað voðalega að flýta sér að stækka drengurinn. Annars er svo langt síðan ég hitti stelpurnar líka svo það var kominn tími á okkur að hittast, verðum að fara að bæta úr þessu stelpur!!!
Undur og stórmerki gerðust í gær að ég fór í leikfimi.....já heyriði það nú verður sko ekkert neitt Svandís fitubolla sko!!!! Er búin að kaupa mér árskort í Sporthúsinu og það verður nýtt mjög skynsamlega. Er reyndar ekki alveg á því að sprengja mig fyrsta mánuðinn svo ég ætla að reyna að byrja á að fara 3-4 í viku, annars fæ ég ógeð strax. Ég náði að lifa þennan klukkutíma sem spriklið varði en dagurinn í dag er búin að vera pínu erfiður, greinilega langt síðan ég hef hreyft mig því ég var búin að gleyma hvað harðsperrur geta stundum verið sárar. But it is worth it!!!
Ætla að hafa það alveg hrikalega gott í kvöld yfir imbanum, sannkölluð sjónvarpsveisla á fimmtudagskvöldum!!!

5.3.03
Úff hvað ég var þreytt í morgun, mætti samt ekki fyrr en kl. 11 í tíma og viti menn................kennarinn lasinn þannig að ég er að bíða núna þar til tími byrjar kl. 13.15! Ég hef nú samt aldrei lent í því hérna í HÍ að kennari sé lasinn. Þeir hljóta að hafa sterkara ónæmiskerfi heldur en þeir sem kenna í framhaldsskólum því þar er reynsla mín önnur.
Hawai rósin er enn á lífi en eitthvað er hún samt að kvarta. Kalli keypti blómaáburð sem við ætlum að prufa á henni og athuga hvort hún verður þá ekki til friðs.
Ég hélt nú að ég fengi hjartaáfall í nótt skal ég segja ykkur :-o sofnaði frammi í sófa yfir sjónvarpinu eins og vanalega þegar Kalli er í vinnu. Um þrjú í nótt vaknaði ég samt og ætlaði að færa mig yfir í rúmið okkar en fór fyrst inn á bað að tannbursta mig. Ég stend þarna svona á milli svefns og vöku að reyna að halda meðvitund við að hreinsa á mér skoltinn og skyndilega stendur manneskja við hliðina á mér. Ég æpti upp yfir mig og henti tannburstanum frá mér og þá sagði manneskjan "ég ætlaði bara að segja þér að ég væri kominn heim svo þér myndi ekki bregða"...............myndi ekki bregða!!!!!!!!!!! Sko var þetta ekki full seint í rassinn gripið að segja þetta eftir viðbrögðin við þessu öllu saman? Kalli hafði þá verið löngu kominn heim og var búinn að vera inni í herbergi í tölvunni og heyrði mig fara inn á bað. Ég held að viðbrögðin mín hefðu ekki verið eins sterk ef ég hefði bara komið að honum í tölvunni inn í svefnó. Er að spá í að koma upp kerfi við baðherbergisspegilinn skyldi þetta koma fyrir aftur, hafa gula "post it" miða og penna við vaskinn sem þarf að fylla út við heimkomu á næturnar :o)
Ætla nú að fara upp í kennslustofu og nærast..........bless í bili.

3.3.03
Núna er ég uppi á Þjóðarbókhlöðu að tölvast því netið er ekki enn komið á Litlahjallann...........jú jú við erum sko flutt !! Þetta er allt annað líf að geta búið í íbúð eins og fólk. Ekki það að við hefðum ekki verið fólk hérna áður fyrr á meðan við vorum í Þjóttuselinu ("Ljóttuselinu") en ég er farin að hallast að því að við værum farin að tileinka okkur lifnaðarhætti moldvarpna þarna alveg í restina :o)
Mamma og pabbi voru svo svakalega góð að koma í heimsókn um helgina og hjálpaði mamma okkur að þrífa holuna gömlu og hleypa lífi í höllina nýju. Tengdó eru líka búin að vera dugleg að koma þessa nokkra daga sem við erum búin að vera í Kópavoginum og gáfu okkur þessa glæsilegu Hawai rós sem er svo flott að það væri synd að leyfa mér að hugsa um hana. Ef ég væri með svona spurningakeppni hérna á síðunni myndi ég spyrja hvað þið hélduð að ég gæti haldið lífi í henni lengi.........böt æ vill kíp jú informed um það hvernig hún mun dafna hjá okkur.

22.2.03
Er búin að pakka helling niður í kassa og furða mig á því hvernig maður fer að því að safna svona miklu drasli að sér!! Skóladótið fer í a.m.k. 3 kassa og það er fyrir utan allt sem ég er að nota á þessari önn....... ég trúi ekki að ég sé búin að læra svona rosalega mikið (*púff*).
Vonandi búum við bara í þessari íbúð sem við erum að fara í þar til við kaupum, ég barasta nenni þessu veseni ekki lengur. Manni líður ekki eins og maður eigi heima þar sem maður er að leigja, ég hugsa allavegana alltaf um Áshamarinn sem heimilið mitt síðan ég flutti frá Eyjum og er hreinlega að farast úr heimþrá þessa dagana. Skrítið hvað maður getur verið misjafn. Eina stundina langar mig ekki að flytja frá Reykjavík og svo aðra stundina sé ég ekki annað en elsku bestu Vestmannaeyjarnar mínar. Held reyndar að ég eigi alltaf eftir að sjá þær fyrir mér með geislabauginn fyrir ofan sig hvar sem ég á eftir að búa.
Hef svolítið verið að spá í hvar ég vildi helst búa í RVK í fremtiden og mér finnst eiginlega enginn staður nógu góður það vantar þetta "örugga" umhverfi eins og er heima..............óspjallaða náttúru (hún getur nú líka verið hættuleg en alveg þess virði).
Ég man svo vel þegar við Hrefna og Iðunn vorum úti í móa að leika okkur, fórum stundum niður á hamar en pössuðum okkur sko rosalega vel því mömmum okkar var ekki vel við að við værum að þvælast þar, svo var maður úti öll kvöld með krökkunum í botnlanganum í leikjum sama hvernig viðraði. Svo gat maður verið upp um öll fjöll og fyrnindi og ég man að við áttum leynistaði út um alla eyju þar sem við geymdum allskonar drasl sem við fundum það var svo spennandi að fara og athuga hvort það væri þar ennþá næst þegar við kæmum. Ég sé það hreinlega ekki fyrir mér að krakkar hér í RVK geti gert þetta, allskonar snarruglað fólk sem býr hér sem maður þekkir ekki neitt en heima vissi maður nú hverjir allir í nágrenninu voru.
Jæja búin að fá smá útrás á þessari borg.........líður mikið betur :o)

21.2.03
Hæ allir saman, ég var að hlusta á útvarpið áðan og þar var verið að segja að ef veðrið á Íslandi væri manneskja þá væri hún í hámarks öryggisgæslu á Kleppi, ég get nú ekki annað en tekið undir það miðað við aðstæður úti núna.
Við erum að fara að flytja í Kópavoginn eftir helgi, ætlum að mála og svoleiðis um helgina og gera soldið sætt áður en við komum okkur fyrir þannig að maður missir víst af árshátíðinni :o( Hlakka ekkert smá mikið til að flytja, það verður munur að þurfa ekki alltaf að standa á tám til að sjá út um gluggann. Loksins getum við líka fengið allt dótið okkar sem er í Vestmannaeyjum, þ.e. ef Gugga systir tímir að láta okkur hafa borðstofuborðið aftur. Hún er búin að koma því svo vel fyrir í stofunni hjá sér!
Vala og Sigríður sváfu hjá mér í nótt og við héldum sjónvarpskvöld í gær en Sigríður kjaftaði okkur systur í kaf í gærkvöldi þannig að við erum með harðsperrur í hljóðhimnunni. Það er nú meira hvað hún getur nú stundum talað, sérstaklega þegar maður er að einbeita sér að batchelor. En það var samt alveg frábært að fá þær í heimsókn, sakna alltaf litlu stelpnanna minna í Vestmannaeyjum. Viktor kemur svo í kvöld þannig að þær ætla að gista hjá systur hans um helgina en ég fæ að passa á laugardaginn........party, party!!
Er að fara í vinnu á eftir þannig að ég ætla að gera e-ð af viti þangað til.

17.2.03
Setti inn link á síðuna hennar Jóhönnu Ýr, ekkert smá flott síða fæ alveg hrikalega vanmáttartilfinningu við að skoða hana (*snökt*). Ógiddlega klár stelpa!
Gaad hvað ég er búin að vera löt, síðustu þrár klukkustundirnar er ég búin að vera að reyna að gera skýrslu og ég er bara búin með innganginn finn mér alltaf eitthvað annað að gera eins og núna. Svo er ég að fara í verklegt í matvælaörverufræði klukkan fjögur þannig að ég sé fram á lærdóm í kvöld.
Júróvisionlagið mitt vann á laugardaginn. Já ég hélt sko með þessu lagi fannst það flottast. Það er svo margir pisst yfir því að þetta lag hafi unnið út af því að Birgitta Haukdal syngur það en kommon lagið fékk helmingi fleiri atkvæði en botnleðja! Voru semsagt yfir 20.000 atkvæðanna frá einhverjum Írafáraðdáendum.........doubt it!! (þyrfti að hafa svona komment á síðunni) Lagið var einfaldlega flott og hljómaði vel í fyrsta skipti sem maður heyrði það, mér fannst reyndar fullt af öðrum lögum flott þarna líka en maður þurfti að heyra þau oftar en einu sinni til að fíla þau. Það þýðir held ég ekki að senda þannig lög út því flestir sem kjósa í þessu eru jú að heyra lögin í fyrsta skiptið, allavegana sit ég ekki á hverju kvöldi tveim vikum fyrir stóra Júró til að sjá öll lögin, ég horfi bara á þau á kvöldinu sjálfu og mynda mér skoðun rétt áður en ég kýs.
Við fórum í Þorlákshöfn á laugardaginn og fengum þessa dýrindismáltíð hjá henni tengdamömmu. Ætluðum öll saman í sund en það var búið að loka þegar við komum ekkert smá spælandi þannig að við Kalli, Erna og Klara fórum bara að spila partý og co. ég og kalli vorum sko að vinna þegar við hættum......verðum að fá þetta spil, ekkert smá skemmtilegt.
Annars ætla ég að reyna að halda áfram að gera skýrsluna þar til ég fer í skólann......segi ég allavegana!!!!!!!!

15.2.03
Eurovision í kvöld og búin að mynda mér skoðun um það hvaða lag ég ætla að kjósa..........þið fáið samt ekki að vita það....nema að það vinni ;o)
Sumir héldu upp á Valentínusardaginn í gær en ég hef tekið eftir því að það eru margir eitthvað svo á móti honum!! Mér finnst það persónulega bara fínt að fá svona áminningu öðru hverju um að maður þarf að gera dagamun á sambandinu sínu og þó svo konu og bóndadagur séu líka á svipuðum tíma þá á maður bara samt að geta bætt einum degi inní prógrammið. Að sjálfsögðu ætti maður nú samt að gera eitthvað svona oftar en bara á þessum dögum. Mitt persónulega mat á flestum þeim sem telja Valentínusardaginn bara vera auglýsingaskrum og markaðssetning (sem hann jú að hluta til er) eru kannski bara ekki tilbúnir að veita elskunni sinni þessa miklu athygli og eru bara fastir í sama gamla farinu. Bara þótt hlutir séu bandarískir þýðir það ekki endilega að þeir séu innantómir. Sjáið bara öskudaginn, ætli hann sé ekki smá stæling á hrekkjavöku Ameríkana, enginn setur út á þann dag og meira að segja er krökkum (eða var allavegana) gefið frí í skólanum í tilefni dagsins. Fólk verður að vera aðeins víðsýnna á svona hluti sem hafa jú jákvæða merkingu.

12.2.03
Var að koma úr Smáralindinni þar sem nokkrar hræður voru á ferli en okkur tókst nú samt að hitta Unu og Kristínu þar og svo líka Guðbjörgu og Óskar.........frekar mikil tilviljun. Ég afrekaði að kaupa mér inniskó fyrir nýju vinnuna mína, alveg einstaklega mjúkir og þægilegir ég ætti nú bara að svífa í vinnunni.
Það er alveg rosalega mikið að gerast á næstunni, partý hjá Kittý vinkonu um helgina. Hún er komin í nýja íbúð og svo á hún líka afmæli. Um þarnæstu helgi er árshátíð hjá matvælafræðinni, ég ætla sko ekki að láta mig vanta þar í þetta skiptið og svo er víst bústaðarferð á planinu þannig að maður ætti ekki að þorna upp í bráð. Vonandi fer maður nú samt að fara að kíkja til eyja aftur til að sjá litlu frænkurnar mínar og auðvitað mömmu og pabba líka.
Annars ekkert að frétta í dag, mjög leim blogg (lofar ekki góðu)!

11.2.03
Hæ allir saman! Er loksins búin að mana mig upp í að reyna að koma einhverju lífi í þessa síðu.
Það er bara alveg helling að frétta hjá mér núna. Ég er komin með vinnu í Sýni og var fyrsti vinnudagurinn minn í dag þar sem við Elín Búa sameinuðum krafta okkar við að lesa okkur til um gæðakerfi og skipulag fyrirtækisins og ég verð nú bara að segja að mér finnst þetta mjög flott fyrirtæki sem við erum að vinna hjá, greinilega mikill metnaður þarna á ferðinni. Starfsfólkið tók líka svona vel á móti mér allir í sólskinsskapi og rosalega heimilislegur andi meðal starfsfólksins. Næsti dagur hjá mér er á föstudaginn (byrja að vinna með skólanum) og er ég bara farin að hlakka alveg helling til!!
Mér tókst með miklum eindæmum að skella mér á skíði á laugardaginn í Bláfjöll(bara að það hefði verið myndavél á staðnum.....híhí). Við Kalli fórum með Ernu systir hans Kalla og b.t.w. þau eru mjög færir skíðakappar. Eins og kannski flestir sem mig þekkja vita er ég frá Eyjum og því miður ekki mikið um skíðabrekkur á því svæði þannig að ég var svarti sauður þríeykisins og brá mér því bara í barnabrekkuna til að byrja með. Eftir 4-5 ferðir með litlu krökkunum fannst mér ég bara orðin alveg þrusugóð og fannst tilgangslaust að hanga í þessari smábarnabrekku og vildi ólm fara í stólalyftuna. Þegar upp var komið reyndis hugrekkið ekki alveg á rökum reist og þurfti Kalli, þessi elska, að beita mig sálfræðimeðferð til að komast niður brekkuna, eftir nokkra kollhnísa og "pepp" frá systkinunum tókst það að komast á leiðarenda en ég ákvað nú bara að skella mér aftur í barnabrekkuna og hélt mig þar þangað til að við fórum heim.
Ég gefst samt ekki upp strax og ætla mér að komast í Skálafell við fyrsta tækifæri. Hef heyrt að brekkurnar þar eigi betur við mig eins og ástandið er núna ég ætla sko að reyna að verða betri en Kalli á skíðum þó það taki mig alla ævi :o)

3.12.02
4.11.02
Viti menn þetta tókst!!!!!!!!!!!
Svo er bara að sjá hvort ég læri eitthvað betur á þetta...............

Jæja maður heyrir að allir séu svo duglegir að blogga þessa dagana að ég bara varð að prufa þetta, veit svo sem ekkert hvað ég er að gera en ég skal reyna mitt besta við að halda upplýsingaflæðinu gangandi. Vona að pabbi verði hrifinn af þessu :o) ......... Ætla núna að sjá hvort þetta hepnaðis hjá mér!